<$BlogRSDURL$>

mánudagur, október 30, 2006

Jæja elsku draumadísir,

Tvennt á dagskrá :
Matarboð hjá Eddu Rún föstudaginn 24. nóvember
Helgarferð dísanna 2007



Edda Rún ætlar að bjóða heim næst og ætlar hún að hafa mat fyrir okkur, dugleg stelpan. Hún verður komin á steypirinn þegar að þessu kemur, svo að við verðum að vera góðar við hana :) Ég held að hún sé sett 29. desember, en veit að hún stefnir á að halda í sér fram yfir áramótin. Við vorum að spá í að hafa þetta þannig að þær sem vilja og eru í ástandi til, geta fengið sér rauðvín eða eitthvað svoleiðis. Eru einhverjar í stuði fyrir það ???

Nú fer að líða að helgarferð dísanna, eru ekki allar búnar að vera duglegar að safna ?!?! Ákveðið var að leggja skyldi inn 3000 kr fyrir afmælisdag hverrar draumadísar á árinu sem er að líða, þannig að allar ættu að vera komnar með 25 - 30 þús upp í ferðina !!! Ég hef reyndar mjög öruggar heimildir fyrir því að aðeins ein dísin hefur lagt 3000 kr inn á söfnunarreikninginn okkar og það er hún Edda pæja, hahahaha. Eniveis, við erum þó einhverjar sem erum öruggar með að fara. Við Rósa og Soffía vorum að kasta fram einhverjum hugmyndum um helgi og áfangastað í síðustu viku og viljum við stinga upp á 11. - 13. maí 2007 til Barcelona. Að sjálfsögðu er þetta bara hugmynd sem er opin til umræðu, en okkur finnst kominn tími til að negla niður helgi svo allar geti farið að plana. Svo nú megið þið melda ykkur inn, hvort sem þið ætlið að koma eða ekki, og endilega koma með hugmyndir.

Kv.
Þórunn

This page is powered by Blogger. Isn't yours?