fimmtudagur, mars 31, 2005
Til hamingju með afmælið þann 30. mars elsku Soffía (ég veit þú kíkir alltaf af og til hingað inn, hehe..).
Eruð þið jafn of hlaðnar verkefnum eins og ég þessa dagana, það má bara enginn vera að því að skrifa hingað inn....

miðvikudagur, mars 02, 2005
Sælar elsku draumadísir !!!
Hvað segiði þá, er allt gott að frétta af ykkur ? Eru þið ekki allar búnar að fá pestina ásamt börnunum ykkar ? Við búin að sleppa þannig séð mjög vel hingað til, þrátt fyrir að vera öll búin að vera með slen og hálsbólgu annað slagið. Ísak Andri reyndar búinn að vera frekar slappur bara heillengi og reyndist vera með þessa RS veiru (kom í ljós í dag). Ekkert er gert við þessu hjá svona stálpuðum börnum, en þetta lýsir sér sem kvef og mjög astmakenndur hósti, þ.e. niður í lungnaberkjurnar, sem sagt ekki fallegur hósti. Hann búinn að vera inni alla vikuna og þar með taldri helginni og þarf að vera eitthvað áfram inni hitalaus. ÞAð er víst einkennandi líka fyrir veiruna að hitinn er mjög upp og niður. Dagmamman hans er búin að vera alveg barnlaus þessa vikuna, öll börnin heima með RS eða streptokokka - ástandið...
Rósa mín, er búin að vera hugsa til þín og vona að þú sért ekki með einkirningasótt. Hvernig líður þér annars í dag ? Vona að þú verðir búin að ná þér fyrir föstudaginn svo þið skötuhjúin getið farið til Boston og haft það gott.
Ég var að koma frá Önnu Maríu, en hún var að laga neglurnar mínar, sem eru alveg æðislega flottar. Mæli með henni ;) Alveg ómissandi að vera með svona fínar neglur í gráa hversdagsleikanum, hehe. Við vorum að spá - alltaf að plana - hvort við ættum ekki að skella okkur á eitt laugardagskvöld í mánuðinum. Soffía er til í að halda það, þannig að þið vitið af því görlís.
Jæja, hlakka til að heyra frá ykkur, þið fáu sem hingað kíkið. Sigga; Anna María var einmitt að spyrja um þig og er e-mail adressan hennar amaria@simnet.is.
Knúsur,
Tóta tjútt