sunnudagur, febrúar 27, 2005
þriðjudagur, febrúar 22, 2005
fimmtudagur, febrúar 17, 2005
Best að taka frumkvæðið og skrifa nokkrar línur hér inn eftir mjög langa pásu hér á draumadísum. Allt gott að frétta af mér og mínum. Ég er enn heima við en nú fer að líða að einhverju, einhverju sem ég hef ekki hugmynd um hvað er ... Nú er nýjasta pælingin sú að skella sér kannski í MBA og verða buisness dama, hvernig líst ykkur á það ? Asnalegt að vera að nálgast þrítugt og vita ekkert í sinn haus !!!
Við Rósa kíktum til Auðar um daginn og er litli kútur alveg yndislegur. Það má eiginlega segja að eggjastokkarnir hafi farið á fullt eftir þá heimsókn, hehe. Hann var vikugamall þegar við fórum til hennar og hef ég aldrei séð eða haldið á svona litlu barni. Mínir voru báðir 17 merkur við fæðingu og því litlir í mjög stuttan tíma. Ég var einmitt að segja við Auði hvað það væri frábært fyrir hana að hafa fengið einn svona lítinn. Auður leit líka rosalega vel út og mátti ekki sjá á henni að hún hafi verið að fæða barn viku áður, enginn magi eða neitt. Nú stefni ég á að kíkja til þín Auður bráðlega, einhvern tíma þegar hentar þér og öllum.
Er ekki annars kominn tími á næsta "hitting" (ég gefst ekki upp á okkur ...) Við Anna María vorum að ræða um að við ættum að hafa matarboð fyrir mennina okkar núna áður en sumarið kemur og hafa það eins konar árshátíð. Er einhver stemmning fyrir því ?
Knus og kram,
Þórunn