<$BlogRSDURL$>

fimmtudagur, ágúst 11, 2005

Elsku Rósa draumadís,

Innilega til hamingju með afmælið í gær !! Já, eins og þú sagðir, þá er þetta í síðasta skiptið sem við erum tuttugu og eitthvað .... Reyndi að hringja í þig í gær, en þið hafið eitthvað verið að bralla, er það ekki ?

Ég er til í að halda eitthvað næst í nýja húsinu okkar. Metta hringdi í mig í gær og hafði sko fréttir að færa ... en þau eiga von á barni í lok janúar !!! Mín bara komin 16 vikur á leið. Allt gott að frétta af henni og vildi hún láta okkur vita að þau kæmu í bæinn fyrstu helgina í september. Er ekki upplagt að hittast þá annað kvöldið þá helgi ??

Þórunn

föstudagur, ágúst 05, 2005

Jæja skvísis, er ekki kominn tími til að tengja.... Eða hittast smá?
Ég er sko til í hitting, vil ólm fá að sjá ykkur og tjatta við ykkur um daginn og veginn. Ekki sakar ef við myndum nú fjárfesta í góðu rauðvíni og ostum til að hafa með tjattinu, ha?? Ég myndi bjóðast til að halda svona hitting ef ég væri ekki að flytja, þið megið svo sem alveg sitja á pappakössunum hehe .....

kveðja
Rósa

This page is powered by Blogger. Isn't yours?