<$BlogRSDURL$>

miðvikudagur, desember 29, 2004

Jæja gleðilega hátíð allar saman. Nú er maður bara mættur í vinnu, voða finnst mér það skrítið svona á jólunum. Það var lokað hérna á mánudag og þriðjudag en verður opið í dag og á morgun. Krakkarnir eru bara heima hjá pabba sínum enda eiga börn að fá að vera heima í kósí fíling á jólunum ekki satt ;) Það er búið að vera nóg að gera, jólaboð og jólaböll. Ég er búin að vera hálf slöpp öll jólin, með kvef og hálsbólgu, en ekkert sem náði að skemma fyrir mér stemminguna. Ég fékk voða fallegar gjafir. Frá kærastanum og börnunum fékk ég græna peysu, græna húfu (Sunna Margrét valdi þetta bæði þar sem grænn er uppáhaldsliturinn minn hehe), rosalega flott náttföt og nærföt og bókina ellefu mínútur. Frá mömmu og pabba fékk ég bókina barn að eilífu og græna húfu (jamm 2 grænar húfur ;) Það var voða stemming að fylgjast með krökkunum taka upp pakkana, enda fyrstu jólin sem þau hafa bæði vit á þessu. Þau fengu allt sem þau óskuðu sér :)
Jæja ég bið að heilsa ykkur í bili,
kveðja
Rósa

p.s. þið megið alveg vera öflugri í því að skrifa nokkrar línur hingað inn ;0)

fimmtudagur, desember 23, 2004

Gleðileg jól kæru dísir!

Ég er búin að vera í "bökunarfríi" í dag og er búin að þrífa allt hérna heima hjá mér hátt og lágt.... aðal tíminn er búinn að fara í endurskipulagningu á þvottahúsinu og tiltekt í skápum, voðalega sem þessi börn eru fljót að vaxa uppúr öllu! Tengdó náðu í börnin á leikskólann þar sem þau ætluðu að fá þau lánuð í að skreyta jólatré og fleira hjá sér, voða hentugt fyrir mig audda;) Svo kom Eyjó heim áðan með plasma sjónvarp sem hann fékk á einhverjum geðveikum díl, ég var nú ekkert alltof ánægð með það, nú þarf að fara að bora og svona stúss á þorláksmessu :-/ Hann hefði nú getað valið betri tíma, en þessir karlar hugsa ekki um það!! Hva þetta reddast!! Við verðum hérna heima á morgun og ég er farin að hlakka svo mikið til að taka á móti jólunum. Jólamatur, jólakonfekt, jólabækur og börnin að dunda sér með allt nýja dótið, get ekki beðið....

Vonandi hafið þið það sem allra allra best,
knús og kossar
Rósa

fimmtudagur, desember 16, 2004

JUJU eg er a lifi og var ad blogga a mina sidu........i fyrsta skipti sidan i lok oktober.
Sigga

mánudagur, desember 06, 2004

Hæ, hæ, draumadísir,

Ansi langt síðan ég hef skrifað hér inn, ætla að breyta því á næstunni. Allt fínt að frétta héðan, í jólaundirbúningi eins og aðrir. Það er bara mjög gaman að vera heimavinnandi í jólastússi, eins gott að njóta þess. Er að verða búin að baka smákökur og svoleiðis, er hálfnuð með jólagjafir og að verða búin með "djúpu" heimilisjólaþrifin. Tíminn er vel nýttur á meðan sá minni er úti í vagni, þar sem hann er á "erfiða" tímabilinu og fer eins og stormsveipur um íbúðina, ... á góðum degi, hehe. Nei, í alvöru, var þetta svona erfitt með fyrsta barnið líka, eða var ma´r kannski aðeins yngri ?? Þetta er bara gaman, alltaf eitthvað um að vera hjá okkur. Skrítið hvað fjölskyldulífið breytist frá því að vera með eitt barn og út í fleiri.

Ég gerði dáldið fyndið um daginn, sótti um nám í flugumferðarstjórn. Hef verið spennt fyrir þessu í þó nokkurn tíma, án þess að nefna við nokkurn, held ég, og ákvað því að slá til þegar ég sá auglýsingu í Mogganum um daginn. Ég fór í málið og reddaði á einum degi öllum gögnum sem til þarf, fór m.a.s í rosa augnpróf hjá frænku minni þar sem allt mögulegt var kannað og komst í gegnum hana. Svo fór ég í fyrsta og eina prófið sem ég fæ að fara í, en ég hef sennilega ekki komist í gegnum það þar sem það er liðin vika síðan það var og ég ekkert búin að heyra. Innst inni er ég nokkuð fegin þar sem ég veit ekki hvort ég hefði lagt í nám í Prag, en þar er þetta kennt. Eins væri ég að fresta ákvörðun minni um læknisfræðina, en er enn að berjast við þá ákvörðun, þ.e. á ég að drulla mér í inntökuprófið eða sleppa því alveg að verða læknir ?! Spurning ársins ! Jísus hvað ég er orðin leið á sjálfri mér í sambandi við þetta...

Jæja, annars er ég bara farin að hlakka til jólapartýsins hjá Eddu Rún næstu helgi. Ég er búin að láta Önnu laga neglurnar, búin að fara í strípur, er að fara setja á mig brúnkukrem og búin að kaupa mér pils, þannig að það er mikið á sig lagt, híhí. Hvað segið þið kellur, hlakkið þið til ? Þið ættuð allavega að láta ykkur hlakka til að sjá baðkarið hjá þeim Eddu og Sigga, það er vígalegt ... Kannski ættum við bara að taka með okkur sundfötin, ha ?

Nóg í bili, hafið það gott stúlkur mínar og gangi ykkur vel í jólastressinu. Rósa, hvernig hefur annars Jónsi það, er hann pirraður út af bólunum ? Er hann kannski ekki með margar ?

Luv,
Þórunn

This page is powered by Blogger. Isn't yours?