<$BlogRSDURL$>

fimmtudagur, september 30, 2004

Hæ hæ skvísís.

Ég er sammála því að það væri gaman að gera eitthvað allar saman í desember, þegar allir verða á landinu (Sigga og Linda koma heim). Væruð þið ekki til í að gera eitthvað spennandi, fara jafnvel uppí sumarbústað saman og njótra góðra stunda og veiga? Er einhver sem getur reddað bústað?

Ég fór í svo skemmtilega haustferð um síðustu helgi með vinnunni minni. Við lögðum af stað fyrir hádegi og byrjuðum á 3 tíma göngu um fjöll og firnindi. Í fyrstu var brjálað veður en síðan skánaði þetta aðeins og varð bara ágætt. Það hætti samt enginn við að labba sem mér fannst alvega ótrúlegt í þessu roki. Síðan fórum við í Raufarhólshelli, sem var mjög spes og skemmtilegt, borðuðum þar og drukkum. Svo fórum við á draugasetrið úúú... á Stokkseyri. Það var öðruvísi, skemmtilegt og svoldið skerí ;) (Hún var einmitt að vinna þar hún Ragna litla ljóshærða). Svo borðuðum við á Hafinu bláa sem er svona líka kósí og góður matsölustaður. Svo fórum við á sveitabæ þar sem stelpa sem vinnur með mér býr og drukkum og sungum. Það vildi svo vel til að samstarfskona mín er gift KK, sem var sko alveg til í að spila fyrir okkur á gítar og við sungum að sjálfsögðu með, ekkert falskt að sjölfsögðu hehe... Þetta var mjög skemmtilegt. Ég var einmitt svo mikið að pæla eftir þessa ferð að við draumadísir ættum nú að gera eitthvað svona saman, ekki alltaf detta bara í það og fara í bæinn! Ég er sko alveg til í að skipuleggja eitthvað svona sniðugt, býður sig einhver fram með mér?

kveðja
Rósa

mánudagur, september 27, 2004

Hae hae!!!

Nu er eg loksins buin ad koma mer fyrir her i London. Nina og Numi voru med mer fyrstu vikuna, svo gisti eg hja vini minum i tvo daga en fekk herbergid mitt i gaer. Eg komst nefnilega inn a campus og er bara mjog anaegd med thad. Thetta er allt mjog spennandi, skolinn er i midbaenum (rett hja Covent Garden) og eg by alveg vid Tower Bridge sem er lika mjog cool og spennandi hverfi. I dag er eg bara buin ad vera ad labba um og reyna ad na attum...svoldid erfitt fyrir svona attavilta manneskju eins og mig...en thetta er allt ad koma. Skolinn byrjar svo a fostudaginn...sma taugatitringur yfir thvi...Er sem sagt bara mjog hamingjusom med thetta allt saman...London ROKKAR!!! Verid endilega duglegar ad blogga...

Linda skolastelpa

fimmtudagur, september 16, 2004

Já það eru nú örugglega allir hættir að kíkja hingað, en það má nú reyna! Nú er komið haust og allir farnir að vera meira innivið, eigum við ekki að reyna að virkja aftur þessa síðu! Ég er hætt með mína síðu en ætla í staðinn að skrifa hérna inn þegar mér gefst tími til. Auður þú mátt ekki hætta að blogga, nú fer idolið og survivor að byrja og einhversstaðar verðum við að fá útrás fyrir því ;)

Ég er farin að vinna allan daginn núna, frá 8-16. Mér finnst mjög gaman í vinnunni og fínt að vera farin að vinna utan heimilis. Það er svo gaman að hitta skemmtilegt fólk, auk þess að starfið á greiningarstöðinni er mjög spennandi og gefandi. Eina vandamálið er að mér finnst ég hitta börnin mín svo lítið... en svona er þetta bara hjá nútímakonunni sem vill eiga einhvern frama ásamt því að eiga stóra fjölskyldu. Þetta er víst allt val hvers og eins. Þetta gengur samt vel og börnin eru mjög sátt á leikskólanum. Þessi vika er reyndar svoldið erfið þar sem að Eyjó er úti á Ítalíu í vinnuferð. Maður er því einstæð útivinnandi móðir þessa dagana, úff púff því myndi ég nú ekki nenna til lengdar.

Þórunn velkomin heim! Endilega náið í x-boxið við fyrsta tækifæri, hehe...
Auður farðu nú að blogga ;)

Jæja látið nú í ykkur heyra draumadísir,
kveðja
Rósa

This page is powered by Blogger. Isn't yours?