<$BlogRSDURL$>

miðvikudagur, maí 26, 2004

Jæja, ég var að tala við Lindu Dögg á msn áðan og hún var að stíga útúr dyrunum á leiðinni á Kaplakrika að sjá Pixies! Ohhhhhhh hvað ég er abbó! Ég var nú ekki búin að gleyma að Metta er að fara að gifta sig, ég kveikti bara ekki alveg á perunni. Hvernig gengur að undirbúa Metta? Æji, já Metta kíkir aldrei á bloggið.....bið bara að heilsa henni :-)
Spennandi samt að þið séuð allar að fara til Köben í haust.....vildi að maður kæmist með en það er víst ekki á allt kosið og maður getur ekki verið allsstaðar. Vonandi verður maður frægur og ríkur einhverntímann (je right....) og sendir einkaþotuna eftir ykkur öllum til að koma í heimsókn einn daginn. Annars eruð þið nú allar velkomnar hingað ef þið viljið........ Djöf...röfl.....verð að hætta...íbúðin er öll í rusli og ég þarf að þvo þvott. Var annars ansi myndarleg húsmóðir áðan og plantaði nokkrum basillikku plöntum á svalirnar hjá mér.

laugardagur, maí 22, 2004

Æi það er svo langt síðan það kom mynd hingað inn. Þessi er nýleg...ég á ekki skanna fyrir gömlu myndirnar! En við erum náttla svo glæsilegar ennþá, þrátt fyrir að vera nálgast þrítugt ansi hratt :/ Það var rosalega gaman að hitta ykkur hjá Mettu og ég tek undir með Þórunni að íbúðin er mjög skemmtileg og borðkrókurinn æði. Svo var maturinn alveg geðveikt góður og ég væri alveg til í að fá uppskriftina af tortilla bökunum (anyone?). Takk fyrir okkur Metta mín ;)
Kveðja,
Rósa sósa



föstudagur, maí 21, 2004

Sælar stelpur og takk fyrir síðast !!! Það var mjög gaman að sjá ykkur allar, eins og alltaf og sérstaklega var gaman að sjá fínu íbúðina hennar Mettu, svakalega flott. Sérstaklega fannst mér matarkrókurinn í eldhúsinu skemmtilegur, bjartur og svoleiðis. Jæja, þá kemur að því ... í sambandi við væntanlega helgarferð, þá virðist Kaupmannahöfn vera vinsælust og er þá sennilega málið að fara þangað. Við komumst að því að september væri sennilegast heppilegasti tíminn, er það ekki ? Við verðum þá bara að koma með heppilega dagsetningu svo við getum farið í að panta og svoleiðis. Látið vita hvaða helgi hentar ykkur best.

Þórunn

miðvikudagur, maí 19, 2004

Jæja saumó annað kvöld hjá Mettu...allir að mæta (Sigga líka, hehe)!
Kveðja,
Rósa

fimmtudagur, maí 13, 2004

Var að skrifa Oddu á nýja meilið hennar til að láta hana vita af blogginu. Var ekki viss um að hún viti af þessu.
Er búin að hanga á netinu í allan morgun að skoða hinar og þessar Eurovision síður. Það er enginn neitt spenntur fyrir þessu hérna (af augljósum ástæðum heh) en ég er staðráðin í því að pína Paul til að horfa. Annars horfi ég bara ein. Ætla að horfa í gegnum Norska sjóvarpið því þau eru með svo góðan sendi og hlusta í gegnum bbc.com því Terry Wogan er svo fyndinn. Nenni engan vegin að hlusta á Gísla Martein í gegnum RÚV.
Eruði allar steinsofandi eða hvað? Allir hættir að skrifa? Eða eruði allar uppteknar við að baka fyrir saumaklúbbinn hennar Mettu? heheheh

miðvikudagur, maí 12, 2004

Ætlar virkilega enginn nema Þórunn (og sennilega ég) að fara á Pixies tónleikana. Hvað varð um gömlu Pixies aðdáendurnar, Auður varst þú ekki hörðust í þessu í den? En þú Linda ætlar þú að fara? Væri ekki gaman að fara nokkrar saman á þessa tónleika og fara á smá nostalgíu tripp saman? Vá hvað ég held að það sé skemmtilegt að fara saman og hlusta á öll góðu lögin sem við sungum ósjaldan á jamminu í den flutt live.....

þriðjudagur, maí 11, 2004

ó já.......ekki missa af survivor næst. Ekkert smá spes hvernig allt saman endar.
svo er lokaþátturinn í Bachelor á morgun......svo tekur sumarið við og maður hangir ekki yfir raunveruleikasjónvarpi öll kvöld.

Ég er mætt aftur á svæðið. Hélt að tölvan væri biluð og fattaði svo að netkortið var ekki í sambandi.....Í HEILA VIKU!!!! jammmm meira blogg á minni síðu. Auður maður getur ekki kommenterað á síðunni þinni....vissirðu það? takk fyrir hlýjar kveðjur til mín og fína mynd. Í dag er stuttbuxnaveður í Toronto og ég er búin að hanga á netinu allt allt of lengi.......ætla útí garð að lesa fyrir prufuna á morgun. Dagbók Anne Frank.....systir hennar hún Margo......krosslegg fingur.

Voðalega er allt dautt hér:(
Vonandi hressist þið við nýjan fola vikunnar;)
kv.Auður

Metta ætlar að halda saumaklúbb á fimmtudaginn í næstu viku, á uppstigningardag sem sagt. Komist þið þá skvísur?
Kv. Rósa

sunnudagur, maí 09, 2004

Afmælisstelpa:)
Til hamingju með daginn Sigga mín!! Vonandi áttu yndislega dag í dag:)
Knús, Auður.





fimmtudagur, maí 06, 2004

Hér er mynd af dúllanum hennar Söru.. vona að þér sé sama Sara, held bara að okkur langi allar mikið að sjá prinsinn...:)
Hér er hann, gútsjí gútsjí...



kv.AUður

miðvikudagur, maí 05, 2004

Vá ma´r, ég sí og æ að vorkenna mér yfir að vera alltaf ein með krakkana, svo var ég að koma af foreldramorgni upp í skóla hjá Aroni og þar hitti ég mömmu eins vinar Arons, sem er ein með börnin næstum hálft árið. Maðurinn hennar vinnur útí Kaliforniu næstum hálft árið, greyið hún. Annars allt gott að frétta af okkur. Alltaf að bíða eftir sumrinu bara. Spáið í kuldann og það er kominn maí !!! Kannski við getum farið í húsdýragarðinn í júlí eða eitthvað...

Þórunn

þriðjudagur, maí 04, 2004

Gleymi náttúrulega að monta mig af sjónvarpsglápi. Idol er í sjónvarpinu í kvöld. LOKSINS er búið að kjósa fíflið burt. Í gær var þáttur þar sem þeir 5 sem eftir eru voru teknir í sófaviðtal og áhorfendur fengu að kynnast þeim betur. Svo var sungið. Í kvöld tekur svo alvaran aftur við. Jessssss. Á fimmtudaginn er svo lokalokalokaþátturinn í Friends. Haldiði að ég sé ekki bara að vinna! Læt einhvern taka upp fyrir mig. 2klst þáttur!!!!!
Er alveg dottin útúr Survivor. Veit ekkert hvað er að gerast.

Ég er mætt aftur á svæðið! Sjá bloggið mitt ef þið viljið vita hvað ég var að gera. Orlando Bloom (foli vikunnar) er líka í nýjustu myndinni hans Brad Pitt TROY. Djöfull ætla ég að sjá hana ma'r. Rómverjar að slást með sverð í nánast engum fötum...grrrrrrrrrr ekki leiðinlegt. Annars er best að fara að koma sér undir sæng og losna við kvef og hálsbólgu.
Sigga

Hæ hæ draumadísir!
Var að koma heima úr frábærri vinnuferð til Köben. Rosalega er gott að komast svona aðeins í burtu frá litlu eyjunni okkar. Fórum að heimsækja danskar félagsmiðstöðvar og líka fullt af vinum okkar sem eru búsettir þar í landi. Svo var líka kíkt svoldið í búðir....keypti smá handa lillanum hennar Söru og líka handa litla krílinu hennar Nínu sem fer nú bara bráðum að koma í heiminn. Það er ekkert smá gaman að versla svona lítil föt! Annars er ég bara heima veik núna, er búin að vera með leiðindar hósta og kvef í mánuð og svo missti ég alveg röddina...ekki nógu skemmtilegt. Var svo að fá þær leiðinlegu fréttir að ég fékk ekki inngöngu í skólann í Amsterdam...sem er kannski bara í lagi þar sem ég var alls ekki viss um að rannsóknar master væri málið fyrir mig. Ég á eftir að fá svar frá einum öðrum skóla, en ef það gengur ekki upp er bara að fara aftur á fullt í þetta umsóknarferli...ég hlít að finna einhvern frábæran skóla sem vill fá svona frábæra manneskju eins og mig til sín (híhíhí). Væri reyndar alveg til í að fara í nám til Köben...þetta er algjör snilldar borg. Bæ að sinni....

Linda raddlausa.

laugardagur, maí 01, 2004

Sælar..
Eini gallinn við þetta blogg er sá að þegar maður er duglegur á sínu eigin bloggi þá situr þetta á hakanum. Þannig að ef þið viljið skoða allskonar sem ég skrifa (sérstaklega um Idol og Eurovision þessa dagana) þá er ykkur velkomið að kíkja á mitt.
Annars er allt sæmó að frétta.. kallinn er reyndar í Chicago núna og kemur ekki heim fyrr en á miðvikudag og ég er orðin lasin:( HK gisti hjá vinkonu sinni í nótt og ég er ein heima með Jökul.. það er ekkert grín að vera einn lasinn með 19 mánaða gutta!

Helgin verður því bara mjög róleg.. En hvað með ykkur hvað á að gera? Ætla að láta eina fyndna djammmynd úr Kambaselinu í den, hahaha:D Stína á perunni og heldur á glasinu sínu eins og Atli Viðar, hehe, og Berti brúni með lokkinn, bwahahaha...



kv.Auður

This page is powered by Blogger. Isn't yours?