<$BlogRSDURL$>

föstudagur, ágúst 11, 2006

Heimurinn hjá mér er soldið á hvolfi en ég man það samt að ein draumadísin er þrítug í dag.
Til hamingju með afmælið Rósa!
Sigga

fimmtudagur, ágúst 03, 2006

Til hamingju Soffía og Bjarni!!

Já nú er Soffía orðin léttari, hún eignaðist stúlkubarn núna á þriðjudaginn 1. ágúst. Sú litla var tekin með keisara og heilsast öllum vel. Snúllan var mjög stór, 20 merkur og 57,5 cm. Það eru engin smásmíði þessi saumóbörn sem eru að fæðast á þessu herrans ári 2006. Ég held svei mér þá að hann Jóhann Birkir minn sé minnstur af þeim, en hann var nú samt 18 merkur og 54 cm sem telst bara ágætt ;0) Svo er bara Edda Rún eftir, hvort ætli það verði? Það eru komnir 2 strákar og 2 stelpur, hmmm... Ég veðja á stelpu, en hvað veit ég svo sem.

jæja pæjur
heyrumst
Rósa

This page is powered by Blogger. Isn't yours?