<$BlogRSDURL$>

miðvikudagur, júní 14, 2006

Jæja jæja skvísís, var ekki kominn tími á folamynd? Mér finnst Matthew svoo sætur, en þið eruð kannski ekki sammála? Ég breytti þessu líka í fola mánaðarins þar sem við höfum verið svo duglegar að skipta vikulega undanfarið hehe..

Hvað er annars málið með þetta sumar? Þórunn, þetta verður vonandi orðið skárra þegar potturinn verður kominn í gagnið hjá ykkur! Við bíðum bara spenntar eftir því :0) Hvernig var það Metta, ætlaði þú ekki að koma í bæinn núna í júní?

Rósa

föstudagur, júní 09, 2006

Til hamingju með daginn elsku Metta mín, sendi bestu kveðjur til austurlands ;0)

Rósa

miðvikudagur, júní 07, 2006

Best að halda áfram í hamingjuóskunum...

Þórunn draumadís er þrítug í dag, til hamingju með það elsku vinkona :0)

kv. Rósa

fimmtudagur, júní 01, 2006

Fyrir Lindu óupplýstu hehe...

Það er engin furða að þú sért hissa enda eindæma frjósemi hjá draumadísunum í ár. Metta byrjaði glæsilega í janúar og átti stærðarinnar dömu, hana Björgu Evu. Við Þórunn eignuðumst svo litla prinsa núna í lok apríl með 2 daga millibili, já já 2 DAGA, alltaf verið samrýmdar hehe.... Þeir voru báðir voða stórir og fallegir auðvitað ;0) Þórunn er búin að skíra sinn prins en hann heitir Guðlaugur Breki. Svo er hún Soffía ófrísk og á von á sér seinna í sumar. Ég veit ekki um hinar, en ég held að það séu ekki fleiri á þessu ári allavega!!

Þetta voru helstu frjósemisfréttirnar af fróni,
kveðja
Rósa

This page is powered by Blogger. Isn't yours?