mánudagur, nóvember 21, 2005
Hellú
Lásuð þið ekki örugglega allar lesbók moggans um helgina? En þar var viðtal og voða fín mynd af einni draumdísinni, alveg svaka flott....
Heyriði eruði búnar að sjá leikritið Ég er mín eigin kona? Ég fór á það um daginn með vinnunni og ó mæ god hvað það höfðaði ekki til mín (né viðstaddra). Hilmir Snær er æðislegur leikari og er að standa sig vel en allt annað var glated. Þannig að ég mæli ekki með því, nema þið hafið einskæran áhuga á þýskum klæðskiptingi sem var uppi á tímum seinni heimstyrjaldarinnar (þetta hljómar kannski áhugavert en þetta var það ekki í 2 klst!!). Þetta var gagnrýnishorn Sigurrósar...
Bestu kveðjur
Rósa sósa

þriðjudagur, nóvember 15, 2005
Draumadísir, draumadísir, draumadísir....... þetta er náttla ekki hægt með þessa síðu, enginn sem nennir að skrifa hingað inn!!
Af mér er það helst að frétta að ég fann 2 grá hár á höfði mínu í gær (dæs). Fyrst fann ég bara eitt (og það gat nú bara verið fríkí hár) en svo fann kollegi minn hér í vinnunni annað (henni til mikillar ánægju þar til hún sá svipinn á mér hehehe). Gráu hárin eru ekki íkja löng, sennilega búin að vaxa í svona rúma 4 mánuði sem er akkúrat sá tími sem hefur farið í þessa þriðju meðgöngu mína..... hver segir svo að það sé ekkert mál að ganga með barn?
kveðja
Rósa