sunnudagur, apríl 24, 2005
sunnudagur, apríl 17, 2005
Jæja þá er stefnan tekin á föstudaginn næsta er það ekki? Þá getur allavega gestgjafinn fengið pössun :) Við getum svo bara alltaf gert þetta fljótlega aftur því að það komast auðvitað ekkert alltaf allir. En ég kemst allvega ;) þeas ef ekkert klikkar, veikindi eða önnur leiðindi. Mig langar mikið til að við stelpur hittumst smá fyrr og eldum og puntum okkur og skálum aðeins og svo komi kallarnir pínu seinna. Er það ekki sneddí?
Allavega er stefnan að mæta hress og með brjóstapumpuna í töskunni til að tappa af svo maður stíflist nú ekki eina ferðina enn ;)
Víí hvað ég hlakka til :)
kv.Auður

laugardagur, apríl 09, 2005
Hvað segir Auður, ertu búin að lita hárið dökkt ?! Ef svo er þá máttu endilega skella inn mynd af þér, svo við fáum að sjá þig svona fína.
Annars er ég bara farin að plana grillið okkar draumadísa ... Kallinn er til, það er það fyrsta. Nú á ég bara eftir að tékka á pössuninni, trúi ekki öðru en að það reddist. Hvernig eigum við að hafa þetta, allir að leggja inn á einn reikning og einhverjar tvær-þrjár versla ? Eigum við ekki að reyna að hittast í fyrra lagi, bara við stelpurnar og svo geta kagglarnir komið aðeins seinna ? Eða hvernig sjáið þið þetta fyrir ykkur ?
Knúsur,
Þórunn

miðvikudagur, apríl 06, 2005
Það er ekki eðlilega langt síðan ég skrifaði hér inn! En mig er farið að dauðlanga til að hitta ykkur. Það er algjört möst, drullusakna ykkar allra:)
Allt er fínt að frétta af mér. Það er nóg að gera alla daga á barnmörgu heimili en ég er alveg að njóta þess eins og brjáluð kona :)
Vonandi var gaman hjá ykkur hjá Soffíu um daginn, mig langaði svo að kíkja en það var ekki alveg að ganga hjá mér... Anna María hringdi í mig úr partíinu og þá voru þær reyndar bara þrjár eftir, hún, Metta og Soffía. Þórunn var farin en hún "veiktist" eitthvað undarlega, haha, díjóóók Þórunn mín:)
En eitt sem ég var að muna. Þórunn var að tala um það um daginn að halda smá gleði heima hjá henni einhverntímann með vorinu. Smá grill og matarboð sem við myndum slá saman í og bjóða köllunum okkar. Ég held að það væri algjör snilld! Og Þórey er til í að passa alla grislingana mína (vá ég tala eins og ég eigi 17 börn) ef þetta lendir ekki á Júrovisjonkvöldinu (21. maí).
Plííís látum verða af þessu, ég er strax farin að hlakka til!!
knús og kremjur
Auður