fimmtudagur, nóvember 25, 2004
Halló halló!
Vá hvað tíminn líður hratt, mér finnst þessi vika bara rétt byrjuð, en það er fimmtudagur! Er þetta merki um það að maður er orðinn gamall? Er það ekki þannig að dagarnir líða alltaf hraðar eftir því sem maður eldist því þá eru þeir minna hlutfall af lífinu..... pæling sko! Talandi um pælingar þá finnst mér svo fyndið að þegar fólk er að tala um að það þoli ekki eitthvað þá leiðir það alltaf til þess að maður tengir það við hlutinn, skiljiði? Jú, eins og Auður þolir ekki Tilda hrísgrjóna auglýsingarnar og alltaf þegar ég sé auglýsinguna þá dettur mér Auður í hug, hehe... eða eins og þegar karlinn í Fólk með Sirrý (sá óvart restina í gær) byrjar að syngja "það er allt fullt af fólki" þá dettur mér alltaf í hug Anna Sig. því hún var að tala um á blogginu sínu að það færi geðveikt í taugarnar á henni ;)
Jæja best að koma sér að efninu. Verður saumó annaðkvöld hjá henni Önnu Maríu?
Bæjó
Rósa

miðvikudagur, nóvember 17, 2004
Hæ hæ.
Ég kemst því miður ekki í sumarbústaðaferð núna um helgina. Karlinn minn er úti og svo er Sunna Margrét með söngsýningu fyrir foreldra (mig) í söngskólanum sínum á laugardeginum. Þetta eru hlutir sem ég vissi ekki fyrir viku síðan, ótrúlegt en satt, og sýnir kannski hvað það er erfitt að ákveða svona fyrirfram þegar að maður er með börn og karl sem vinnur óreglulega í útlöndum :(
Ætlið þið að fara? Reyndi að hringja í Þórunni og Soffíu í gær en þær voru ekki hjemme! Eru allir alveg hættir að kíkja hingað inn kannski líka?
Jæja allavega kær kveðja til ykkar og góða skemmtun um helgina,
Rósa (sem er miður sín yfir því að komast ekki)

miðvikudagur, nóvember 10, 2004
Hæ og hó....
Jólin að nálgast bara. Við Auður erum farnar að huga að jólakortunum enda ekki seinna vænna hehe. Hvernig væri að hittast og föndra jólakort núna nokkrar kvöldstundir fram að jólum. Við gætum haft huggulega stemmingu, föndra með heitt kakó og piparkökur við höndina! Við gætum byrjað heima hjá mér, bara ákveða hvaða kvöld. Væruð þið ekki til í svona föndur/huggulegheit?
Svo er ég auðvitað til í saumó líka, Metta ætlar þú ekki að halda næst?
kveðja

mánudagur, nóvember 08, 2004
Þá erum við komin tilbaka frá New York, komum í gærmorgun. Það var auðvitað æðislega gaman hjá okkur hjónum, enda er endalaust mikið hægt að gera þarna. Við fórum út að borða á góðum veitingastöðum, gengum hálfa Manhattan, held ég, versluðum eilítið, fórum á bari og svo auðvitað á þennan blessaða forsetadansleik. Svo sváfum við út, eða veit ekki hvort hægt sé að kalla það að sofa út, en við sváfum þar til okkur langaði sjálf að vakna. Fyrsta daginn vaknar ma´r náttla eldsnemma út af tímamismuninum og vöknuðum við kl. 6 þann morguninn. Svo með hverjum deginum sem leið bættist einn klukkutími við, þannig að við komum svona þokkalega vel útsofin heim.
Hótelið sem við vorum á kallast Paramount og er staðsett við 46th street og Broadway, þannig að það var mjög vel miðsvæðis. Það er hannað af einhverjum hönnuði sem er þekktur fyrir nútíma hönnun og var því allt frekar trendy. Herbergin lítil á amerískan mælikvarða og rúmin hörð, ájjjj. En að öðru leyti var það flott.
Þvílíkar vinkonur sem ég á !!! Elsku Edda og Auður, takk æðislega fyrir hjálpina með strákana á meðan við vorum í burtu. Auður mín, þó að það hafi ekki komið til þess að tengdó hringdi í þig og bað þig um aðstoð, þá var bara æðislegt af þér að bjóðast til þess að hafa Ísak Andra, I really appreciate it, knus, knus !!! Og Edda mín, frábært hvernig þú sást bara um Aron Fannar, hann var ekkert smá ánægður með það og við Siddi alveg yfir okkur þakklát. Gátum ekki vitað af honum í betri höndum en hjá þér, knus, knus !!!
Það gekk sem sagt mjög vel með strákana, enda þeir í góðum höndum. Get samt ekki neitað því að á leiðinni út á flugvöll, eftir að ég hafði skilið við þá, grét ég og grét :( Ég hélt í alvörunni að ég myndi deyja úr sorg og hugsaði bara um alla dagana sem ég átti eftir að vera í burtu frá þeim og grét meira. En svo bara hughreysti Siddi mig og einhvern veginn reddaðist þetta allt saman. Við höfðum allavega mjög gott af þessu.
Jæja, nóg af blaðri, hvað er annars að frétta af ykkur görlís ?
Þórunn

föstudagur, nóvember 05, 2004
Blesssssaðar dísir!!!
Ég vildi bara óska ykkur góðrar helgi skvísur á þessum skemmtilega föstudegi!
Það eru akkúrat tvö ár í dag síðan að ég átti drenginn minn, vá hvað tíminn líður hratt á gervihnattar öld! Litla barnið orðið 2 ára...vó! Ég hitti einmitt hana Huldu úr MA bekknum (Seljask.) á leikskóla barnanna minna. Hún er nýkomin úr námi og starfar núna sem deildarstjóri þar. Henni fannst ég bæði eiga mörg og gömul börn!!! Svo missti hún andlitið þegar ég sagði henni að Auður ætti von á sínu þriðja, he he he. Í hennar gamla hóp eru voða fáir búnir að fjölga sér eins mikið og við, jú nema Mæja og Gummi sem eiga 2 lítil.
Jæja ég er allavega að fara að baka í kveld og kem til með að missa enn og aftur af idolinu :( Svona fyrirfram held ég með litla bróður hans Sidda. En ég veit vel að maður á bara að dæma eftir frammistöðu, sem ég ætla að sjálfsögðu að gera. Ég verð líka að bæta því við að ég er yfir mig hneyksluð á borgarstjóra, ekki hægt að hafa krimma í þessu embætti, alveg útí hött. Svo er ég líka alveg gáttuð á því að Bush hafi verið kosinn aftur, það er auðvitað ekki í lagi!!! Annars hef ég það fínt sko hehe....
Vonandi er gaman hjá þér í NY Þórunn mín. Þú verður nú að koma með útdrátt úr ferðinni hingað inn á síðuna á sunnudaginn! Hvernig var með grísnum, gastu verið með attidute við hann? Þú hefur eflaust borið af í prinsessuátfittinu frá Eddu, hvað annað?
Bið ykkur vel að lifa,
ykkar dís
Rósí

mánudagur, nóvember 01, 2004
Hellú görlís!
Ég er alveg steikt í hausnum núna enda búin að vera á námskeiði í allan dag hjá námsmatsstofnun. Auður mín, skrabbið gekk bara mjög vel og þúsund þakkir fyrir lánið á föndurgræjunum þínum. Fyrir þá sem ekki vita, þá á Auður ekkert smá flottar föndurgræjur og allt svo skipulagt og flott hjá henni. Albúmið hennar ömmu gönmlu vakti svaka lukku og nú er ég alveg sjúk í að gera meira. Það eina sem truflaði mig er þessi bölvaða sinaskeifubólga, hehe eða slíðurs e-ð?
Ég fór í Borgarleikhúsið í gær og sá Screensaver með íslenska dansflokkinum, ó my god hvað þau eru flott og sýningin mjög áhrifarík og glæsileg. Ég skil bara ekki hvernig dansararnir halda þessa sýningu út, dansandi eins og brjálæðingar allan tímann. Gaurarnir í íslenska dansflokknum eru frekar flottir (og ekki allir hommar eins og þeir orða það sjálfir). Ég get tvímælalaust mælt með þessari sýningu!
Jæja best að fara að koma börnunum í háttinn og fara svo að glápa á survivor, sem er reyndar hundleiðinlegur núna (ég er allavega ekki mjög hrifin af þessari seríu)