fimmtudagur, október 28, 2004
Já og eitt enn....ein með skrifrembu þrátt fyrir sina-eitthvað-bólgu...hehe. Ég hef verið að skoða svona skrabb (eða skrapp...veit ekki hvað það heitir almennileg) eins og Auður var að gera og ég er bara orðin sjúk. Ég væri svooo til í að læra þetta. Amma á nebbla 85 ára afmæli og ég er að gera svona minningaralbúm til að gefa henni. Það þarf reyndar að vera tilbúið fyrir laugardaginn, þannig að ég næ sennilega ekki að læra að gera svona fancy hluti fyrir það. Auður geturðu ekki komið með nokkur góð ráð fyrir mig? Væruð þið hinar ekki til í að læra þetta? Þá gæti Ausa kannski bara kennt okkur? Kostar mikið að kaupa það sem þarf í þetta...osfrv.?
Rósa sem ætlar að gera allt í einu þessa dagana...

Sælar skvísur!
Ji minn eini - sinaskeifubólga dauðans á þessum bæ, ái! Jamm, minns skellti sér á fimleikaæfingu í gær með Tótu tjútt, hehe við vorum flottastar! Það eru 14 ár síðan ég fór síðast á fimleikaæfingu... þið getið ímyndað ykkur gífurlegt form sem ég er í! Ég var nú samt ánægð með að geta ennþá handstöðu-kollhnís og handahlaup ;) Svo var gaman að geta hoppað og skoppað á trampolíni og sleppt sér aðeins, er ekki frá því að maður mæti bara aftur! Það eina sem stoppar mig í að fara aftur er þessi djö***** sinaskeifubólga og svo líka þessi dans sem þær eru að fara að æfa, hinar eru nebbla svo ógó góðar í fimleikum, eru að fara í skrúfur og svona á dýnu... En vá hvað það var gaman að fylgjast með þeim...maður fékk alveg svona gamlan fíling!
Mér fannst ekkert kalt í morgun þegar ég lagði af stað í vinnuna, en svo þurfti ég að skafa og það var geðveik hálka, skrítið, hmmmmm....greinilegt að það hefur verið næturfrost.
Af mér er annars allt fínt að frétta. Það er ennþá gaman í vinnunni, nóg að gera og ég læri eitthvað nýtt á hverjum degi. Börnin eru hress og kát, Jónsi minn er búin með þessa flensu sem var í síðustu viku þannig að þetta er allt að koma. Karlinn kominn heim frá Feneyjum og ég er bara að vona að hann stoppi hérna heima í langan tíma núna. Allavega þannig að hann geti passað þegar við förum í sumarbústaðaferðina okkar ;)
Linda það var gaman að heyra í þér um daginn, endilega skrifaðu meira hérna inn þannig að maður geti nú fylgst með þér í úgglandinu!
Bið að heilsa ykkur í bili,
kveðja
Rósa "fimleikastjarna"

miðvikudagur, október 27, 2004
Varðandi sumarbústaðaferðina okkar þriðju helgina í nóvember, þá hef ég talað við Mettu, Eddu Rún og Önnu Maríu. Metta segist vera til svo lengi sem hún kemst; Eddu líst mjög vel á þetta og stakk upp á að við myndum hittast eitthvað áður; Önnu Maríu leist rosalega vel á þetta og sagðist 100 % myndi koma á laugardeginum eftir að hafa kennt (leggja af stað kl. 14); Edda Rún ætlar að tala við Oddu um þetta. Þannig að eins og málin standa eru það pottþétt ég, Soffía, Rósa, Auður, Edda og Anna María.
Metta er á leið til Köben núna og kemur á sunnudaginn. Hún er til í að halda smá saumó áður og held ég að hún hafi verið að tala um þriðjudaginn í næstu viku, frekar en þar næsta. Það kemur allavega betur í ljós þegar hún kemur tilbaka. Ég er reyndar að fara til New York næsta þriðjudag, en hélt þegar ég talaði við hana að ég færi ekki fyrr en á miðvikudaginn.
Hvað segiði annars, hvernig er stemmningin fyrir þessari ferð ??
Tóta

þriðjudagur, október 26, 2004
Elsku dísir,
Þið getið aldrei getað upp á því hvað ég er búin að koma mér út í ... fimleika hjá old girls með Björkunum !!! Fór í gærkvöldið á fyrstu æfinguna, en Eva Lind vinkona plataði mig út í þetta og er hún að kenna þetta ásamt einhverri Báru. Hún lofaði mér að þetta yrði bara gaman, brennsla, dans og nóg af þreki. Eniveis, þetta reyndist rétt hjá henni en þar að auki voru teknar nokkrar stökkseríur með smá flykki og straight og svoleiðis, sem er náttla pís of keik fyrir sumar þeirra og þar á meðal Evu Lind, sem æfði með meistaraflokk. Ég vissi ekki hvort ég átti að hlæja eða gráta, hehe. En er nú að hugsa um að mæta aftur og taka allavega þátt í dansinum og þrekinu, sem er mjög gaman. Svo ætlar Lilja systir að koma með mér á morgun aðra æfinguna, þannig að hún getur rifjað upp einhverjar stökkseríurnar með þeim. Í dag er sem sagt nóg um harðsperrur og eymsli í úlniðum og annars staðar.
Leiter,
Þórunn

miðvikudagur, október 20, 2004
Ég er ekkert smá léleg að skrifa hingað inn.. en ég fylgist samt vel með og les allt sko!! Ég hef bara ekkert skemmtilegt að segja eins og þið hinar.. það gerist ekki svo mikið hjá mér, hmm..
Þórunn, ég er alltaf á leiðinni að hringja í þig, ef ég þekki þig rétt þá ertu kannski eitthvað miður þín yfir að hafa vakið mig þegar þú skilaðir eldföstu mótunum, hehe, ég var ekkert smá mygluð! En ég sofnaði sko aftur og svaf alltof lengi þannig að þetta var í besta lagi sko;)
Mér líst vel á að skella okkur í bústað og mun mæta galvösk með landann og hassið, hehe, eða ekki... Ætli ég verði ekki rólegust með bumbuna sem stækkar óstjórnlega mikið þessa dagana:)
Linda, gaman að heyra frá þér og takk fyrir mailið, gaman að heyra hvað gengur vel hjá þér og að þér líki svona vel þarna úti. Ég er svo viss um að þetta eigi vel við þig:)
Metta, where the hell are you!?! Þú kíkir nú stundum hingað inn er það ekki? Láttu nú heyra aðeins frá þér, það er sko ekkert flókið að setja inn smá komment;)
Sigga, hlakka til að sjá þig um jólin og gott að allt gengur vel!
Annars segi ég ekki mikið, mitt líf snýst um að hugsa um börn, karl og bumbu. Kennaraverkfallið er að gera mig óða... allt í rugli sko:-/
bæ í bili, Auður

fimmtudagur, október 14, 2004
Ég legg til að við ákveðum 3. helgina í nóvember (19.-21.) fyrir sumarbústaðaferðina. Tengdaforeldrar Soffíu eiga mjög sætan bústað, sem er staðsettur rétt hjá Flúðum, sem við megum fá lánaðan ef við viljum. Þar er pottur og pláss fyrir okkur, hvort sem við verðum 3 eða 7, hehe. Mig myndi langa til að leggja af stað seinnipart föstudags og vera fram á hádegi á sunnudegi, finnst ykkur það kannski of langt ? Anyway, hvernig líst ykkur á þetta ? Við getum eldað okkur eitthvað rosa gott á laugardeginum, tekið með okkur fullt af tónlist og mixað einhverja góða kokteila, farið í göngutúra, sund, pottinn og fl. Ég held að það verði bara frábært fyrir okkur að gera eitthvað svona saman, en þið ?
Þórunn
Þórunn
miðvikudagur, október 13, 2004
Ég borðaði pizzu með sultu í hádeginu. Það var í fyrsta sinn sem ég smakka það, mjög gott. Þetta var sko gráðostapizza....
Annars vil ég koma með formlega kvörtun á það hversu lélegar þið eruð að blogga hingað inn. Mjög uppbyggilegt hjá mér, I know :-/
kveðja
Rósa

sunnudagur, október 10, 2004
Hellú !
Já 20. nóvember hentar mér vel í húsmæðra-frí. Þá er bara næsta skrefið að redda bústað, ég skal tékka hvað ég get gert en foreldrar mínir nota sinn bústað mjööög mikið sjálf og svo er ekki pottur þar. Mig minnir að það sé hægt að leigja bústaði með pott og alles á Flúðum, hvað erum við tilbúnar að borga? Við hljótum að finna eitthvað sniðugt!
Ég var einmitt að koma úr tveggja daga ferð. Ég var á Sólheimum í Grímsnesi, við vorum með ráðstefnu, þ.e. sálfræðingar sem vinna að málefnum fatlaðra. Þetta er alveg yndislegum staður og maður nær sko alveg að hlaða batteríin þar, þrátt fyrir fyrirlestra setuna. Þar vorum við í svaka fínni gistingu, svona stór bústaður sem er með sér herbergjum og baði. Svo er allur matur og allt svoleiðis svo góður þarna, allt lífrænt ræktað, jammí!
bestu kveðjur

föstudagur, október 08, 2004
Jæja stelpur, er ekki kominn tími á eina helgi í sumó í nóvember ?? Við Soffía vorum að tala um þetta og myndi 3.helgin í nóv henta okkur vel, hvað segiði um það og hvernig líst ykkur á smá húsmæðraorlof ? Væri ekki frábært að hafa smá stelpudekurhelgi og gera bara eitthvað skemmtilegt ? Endilega látið í ykkur heyra ... Ég tala við Eddu og spyr hana hvernig henni lítist á þetta, gætuð þið hinar heyrt í Önnu og Mettu ?
Leiter,
Þórunn
P.S. Ef einhver stemmning er fyrir þessu, þá vantar okkur aðeins bústaðinn, sem verður að vera með potti ...

Jæja stelpur, er ekki kominn tími á eina bústaðaferð í nóvember ? Hvernig líst ykkur á að fara þriðju helgina í nóvember, bara við stelpurnar yfir eina helgi ? Eigum við ekki skilið smá frí frá köllum og börnum, hehe. Veit að þið lítið kannski ekki allar eins á málið, en ef ég tala fyrir mig þá er ég löngu komin á tíma ... Langar svo í smá stelpufjör og dekur og svoleiðis. Ef þið eruð spenntar fyrir þessu, endilega látið heyra í ykkur. Eins þyrftum við náttla að redda bústaði sem verður að vera með potti. Ég skal tala við Eddu (sem talar svo við Oddu) og Soffíu (sem er mjööög til í slíka ferð) og kannski þið skiptið Önnu MAríu og Mettu með ykkur.
Leiter,
Þórunn
Leiter,
Þórunn