<$BlogRSDURL$>

föstudagur, apríl 30, 2004

Fékk sms frá Söru í morgun:

Drengur er fæddur, 16 merkur, stórmyndarlegur eins og foreldrarnir:) Mæðginum heilsast vel.

Til hamingju Sara og Davíð:)

kv. Auður

fimmtudagur, apríl 29, 2004

Sælar skvízur! Ég hitti hana Mettu niðrí Hreyfingu í gær (við erum svo duglegar í ræktinni sko:) og hún ætlar að halda saumaklúbb eftir tvær vikur, þ.e. þarnæsta fimmtudag. Metta er að fara til DK í næstu viku (Linda hvenær ferð þú? Ertu kannski úti?) svo ætlar hún að vera með klúbb þegar hún kemur heim. Hún bað mig um að láta ykkur vita og athuga hverjar kæmust? Oh ég er strax farin að hlakka til að borða kræsingar, he he... ég kemst sem sagt.

miðvikudagur, apríl 28, 2004

Er ekki kominn tími á nýjan fola hjá okkur, he he...

Sigga þú verður að finna einhvern svakalega flottan, okey?

Kveðja
Rósa folaáhugamanneskja

Ég var eitthvað voða þreytt í gærkveldi og lagðist því í sófan og glápti á innlit útlit, sem ég hef ekki gert lengi. Þessir þættir voru farnir að fara svo í taugarnar á mér því í þeim birtist einhver veruleiki þar sem allir eiga skítnóga peninga og það er bara ekkert mál að breyta öllu og gera allt nýtt og flott og skipta um íbúð á tveggja mánaða fresti eða eitthvað álíka fáranlegt. En þátturinn í gær var nú bara ágætur. Það er svoldið skemmtileg þessi keppni nemanda í lisháskólanum. By the way, var þetta ekki hún Hjördís Sólveig fimleikastúlka sem var þarna svo sæt og fín og með kúlu og allt? Mér finnst þetta góð viðbót við þættina og þetta gefur ýmsar hugmyndir eins og Vala Matt segir alltaf :) Svo ætlaði ég að halda áfram að glápa á law and order: CI, en sofnaði náttúrulega yfir því..... mér finnst karlinn þar svo fyndinn. Fyrst fór hann geðveikt í taugarnar á mér en núna finnst mér hann bara hlægilegur....svona besserwisser sem finnur allt á sér og sér í gegnum allt og alla, he he þetta er nú meiri vitleysan.

mánudagur, apríl 26, 2004

Heyrðu á bara ekkert að blogga í dag? Ég hef svo sem ekki mikið að segja...helgin var fín, endaði reyndar á slysó í gær með prinsessuna mína :( það er svo vont að klemma sig, ái.
Ég er bara róleg yfir heimsmálunum núna, he he....EN ég skil ekki alveg þessi afskipti Davíðs Oddsonar á því hver á hvað í landinu, skiljið þið þetta?

föstudagur, apríl 23, 2004

Sigga, hérna geturðu séð myndbandið með íslenska júró laginu... Veldu multimedia lounge þarna uppi og þá geturðu valið hvaða lag þú vilt sjá.... ert kannski löngu búin að finna út úr þessu sjálf..?

Hvað finnst ykkur um fegurðarsamkeppnir? Ég er svona á báðum áttum alveg, ekki á móti og ekki hlynnt. En mér finnst auðvitað fáranlegt að keppa í fegurð.... Set hérna link á keppendurna sem "keppa" í fegurð í kvöld. Þær eru bara allar eins og fermingarbörn finnst ykkur það ekki?

Er ekki kominn tími á nostalgíumynd:)
Mér hefur alltaf fundist þessi mynd extra fyndin. Í rútu á leið í Þórsmörk í 10. bekk og Grímur undir stýri. Takið eftir Siggu á myndinni.. sýnir virðinguna sem við bárum fyrir þessu öllu saman, fjúff... :D


fimmtudagur, apríl 22, 2004

Sælar! Idol-úrslitin voru í sjónvarpinu í gær...............ég fór að gráta, meira segi ég ei. Mest spennandi atkvæðagreiðsla hingað til (the most exhiting rose-ceremony EVER). EKKI MISSA AF ÞESSU!!!!!!! ef þið eruð ædol aðdáendur.
Það var ruslsjónvarpsveisla hjá mér í gær því Paul var á hljómsveitaræfingu og ég átti að vera heima að læra línurnar mínar.....
Horfði á The Bachelor. Gaurinn sem er Bacherlorinn núna er Kanadísk Fótboltastjarna (sko amerískur fótbolti) og það er nýtt twist í leiknum. Vinkona hans er njósnari og segir honum ef einhver er að haga sér eins og drusla þegar hann sér ekki til. Agalega fyndið. Það er ein sem er módel og aðeins eldri en hinar sem er svo svahakalega mikil drusla að það hálfa væri nóg. OG LEIÐINLEG! Þær fóru í "ég hef aldrei..." leikinn og hún drakk eftir allt! Og hinar pæjurnar voru náttúrulega algerlega mállausar og hata hana fyrir að hafa sofið hjá of mörgum og einum giftum osfrv.
Svo er annað reality drasl sem er í sjónvarpinu hér í N-Ameríku sem heitir "The Swan". Hef reyndar aldrei horft á þann þátt því mér finnst konseftið svo svakalega langt yfir strikið. Þar eru 10 stelpur ( minnir mig ) hver annari ljótari sem fara í "Extreme Makeover" og sjá svo hver verður kosinn út úr þáttunum í einhverri vinsældakosningu eða eitthvað. Ætli það sé ekki verið að sjá hver er falleg innan við beinið eða eitthvað álíka steikt. Jæja, það dó víst ein á skurðarborðinu því það var verið að framkalla svo margar aðgerðir á henni í einu. Líkaminn gafst upp. Finnst ykkur ekki hlutirnir gengnir aðeins of langt. Svo skulum við nú ekki gleyma að þættirnir voru teknir upp fyrir soltlu síðan og eru ennþá í sjónvarpinu. Því að í Ameríku eru jú peningar mikilvægari en fólk. Sbr stríðsþorstann. Sjitt ég er alveg orðin reið. Best að hætta í bili.......þið eruð kannski löngu hættar að lesa!

Gleðilegt sumar elsku dísir!
Kveðja frá Rósu sem er bara komin í sumarskap :)

miðvikudagur, apríl 21, 2004

Og þá verð ég nú að setja inn mynd líka af hinum duglega sjúkingnum mínum sem hér gæðir sér á pizzu daginn eftir slysið..



Hilsen Ausi

Hey girls.
Hvað segiði þá? Gaman að sjá hvað þið eruð orðnar öflugar hérna inni:)
Allt ágætt er að frétta af mér. Maður er búinn að ná sér niður eftir slysahelgina og Halla Karen öll að koma til.. en neinei þá er Jökli litli orðinn lasinn. Alveg sko... En svona er þetta, þessi grey börn verða að fá að taka sínar pestir. Allavega þá er ég heima í dag með snúðinn og engin vinna:-/ Set hér mynd af litla lasarusnum..



Hilsen Auður

Var ekki einhver að biðja um nýrri myndir af draumadísunum? Hérna er ein voða sæt af stöllunum Auði og Tótu Tjútt, njótið vel.....




kv. Róshildur

Jæja svona í framhaldi af Sex and the city umræðunni:


kveðja
Rósa (sem fílar alveg líka skó sko...)

Hæ görlís !!!

Nú er Siddi búinn að vera í burtu í þrjár nætur og ég gjörsamlega ósofin. Get ekki beðið eftir að hann komi heim í dag ma´r. Ég fór eftir ykkar ráðum og eins mömmu ráðum, hafði ljós hér og þar og svona, en ekkert gengur, núna gat ég varla sofið því ég var svo hrædd um að það kviknaði í út frá einhverjum þessara ljósa .... jísus hvað ég er orðin þreytt á þessu rugli í mér. Nú verður farið í Húsasmiðjuna og fjárfest í lásum og vasaljósum, shit ég vona að enginn brjálæðingur lesi bloggið okkar. Yfir í önnur mál, ætlum við ekki að fara að fara í húsdýragarðinn einn laugardaginn með krakkana og grilla og svona ?! Eigum við að ákveða einhvern daginn eða fylgja veðurspánni ?

Seeya,
Þórunn

P.S. Á einhver ykkar línuskauta ?!

mánudagur, apríl 19, 2004

I think I am a Múvístar!!!!!!!! Ég fékk hlutverkið í bíómyndinni sem ég var í prufu fyrir á laugardaginn. Tökur á sunnudaginn kemur. Rosa spennandi mynd og ég er í öllum atriðum....sem þýðir meiri vinna fyrir engan pening....en samt fullt fullt af reynslu og bíómynd á ferilskrána. jamm Og varðandi GAP þá fékk ég mikið hrós fyrir að vera klár að brjóta saman. Muniði eftir atriðinu í Reality Bites þegar hún var að sýna hvernig maður brýtur saman í GAP.....jamm það er ég. AAAAAALVEG EINS! hehe
Gaman að sjá hvað allir eru duglegir að skrifa.......ja allavegna þær sem hafa verið að skrifa. Frábært að vera svona tengd ykkur þótt ég sé hér.
Elska Blogg

Góðan daginn stúlkukindur. Rosalega fínt veður úti í dag. Ég vaknaði snemma í morgun og fór uppá völl að ná í mömmu og pabba, þau eru loksins komin heim frá ameríkunni. Ég fór í sumarjakka og voða kúl, svo komu þau út úr Leifstöð og voru gjörsamlega að krókna úr kulda. Maður gleymir því alltaf að "góða veðrið" hérna á Íslandi er ekkert voða gott í samanburði við gott veður í öðrum löndum... Ég notaði tækifærið og spjallaði við pabba um Íraksmálin á leiðinni í bæinn (gaman að fá mig til að taka á móti sér, he he). Ég get bara ekki hætt að hugsa um þetta. Það er talið að um 700 manns hafi farist þar í síðustu viku og þar á meðal lítil börn. Ohhhh ég verð alveg brjáluð þegar ég hugsa um Bush, þennan vitleysing og Blair líka, hann er alveg jafn vitlaus og Bushinn að mínu mati. Pabbi sagði að fólk úti væri almennt séð óánægt með Bush og hrætt við þetta hjá honum (og nú spilaði hann golf við fullt af amerískum körlum, hehe). Málið er að kosningarhlutfall í USA hefur alltaf verið lágt því almenningur spáir svo lítið í stjórnmál þar. Maður verður bara að vona að fólk vakni og fari að kjósa rétt í næstu kosningum...annars veit ég bara ekki hvað. Greyið fólkið í Írak það á alla mína samúð. Ég skil ekki hvernig hægt er að réttlæta það að ætla frelsa land með hernámi!!! Eiga heimamenn að vera ánægðir með það að hafa einhverja ameríska hermenn útum allt skjótandi á allt og alla? Jæja, spánverjar eru allavega komnir með smá vit og ætla að senda sína hermenn heim, gott mál. Vonandi stendur Evrópa saman í þessu og mótmælir stríðinu.
Sorry þetta neikvæða blaður í mér, maður á kannski bara ekkert að pæla í þessu, eða hvað?

Meiri folinn... Æ, ég er nú ekki góð í þessu, en þið vitið alveg hversu suddalegur hann getur verið, er það ekki ?! Þetta er ekki besta myndin af honum, endilega finnið aðra betri, þið Johnny Deppara aðdáendur.

Þórunn

laugardagur, apríl 17, 2004

Fékk vinnu í GAP í dag. Gekk vel í prufu. Sólin skein og það var 18 stiga hiti. Er að fara í prufu fyrir bíómynd á morgun. Allt lítur betur út með hækkandi sól......nema að ég er ekki ennþá farin að léttast.....held ég sé að breytast í vöðvatröll.
Sigga

föstudagur, apríl 16, 2004

Ég eins og svo margar konur er sjúk í Sex and the city. Í gærkvöldi horfðum við frænka mín á þáttinn og fengum okkur rauðvín með. Það er svo merkilegt hvað það er mikill sannleikur í þessum þáttum. En svo talar maður um þetta við stráka og þeir eru bara ekki að skilja hvað sé svona frábært við þennan þátt. Finnst þær bara vera shallow og lauslátar. Arg það er stundum svo erfitt að ræða svona mál við hitt kynið. Við erum í alvöru frá sitthvorri plánetunni oft á tíðum. Ákvað bara að deila þessu með ykkur. Ég er annars að fara á árshátíð um helgina....hlakka ekkert smá til.....geggjað stuð á Hótel Sögu, rosa fínt og flott. Góða helgi dísir!!!

Linda Bradshaw

Shit hvað ég var hrædd í nótt. Siddi er erlendis, ofkors, þannig að það eru bara ég og strákarnir mínir. Ég var að tala við Lilju systur í símann til kl. 1 og fór þá upp í rúm. Ég hef alltaf kveikt í eldhúsinu þannig að ég fái smá birtu inn, því ég er dáldið myrkfælin. Svo slökkti ég á sjónvarpinu og öllu inn í herberginu mínu og fór að sofa. Var varla sofnuð þegar ég hrökk við það að það var slökkt á ljósinu í eldhúsinu og allt varð dimmt- búhhh. Ég náttla skeit næstum í mig af hræðslu en stökk í áttina að náttlampanum og kveikti, en ekkert ljós kom. Ég var næstum því að fríka út og það eina sem mér datt í hug var, að nú væri einhver brjálæðingur inní íbúðinni minni sem væri búinn að taka rafmagnið af og væri tilbúinn að ráðast á okkur. Þannig að ég passaði mig að láta engin hljóð frá mér og dró símann undan koddanum mínum og ætlaði að hringja - bara eitthvert - en þá kom bara eitthvað bíp og enginn tónn. Ég er að meina´ða, ég vissi ekki hvert ég ætlaði af hræðslu. Ég hugsaði með mér að ég yrði bara að fara fram og tékka á málunum. Það fyrsta sem mér datt í hug var að hnippa í Aron Fannar, sem lá steinsofandi við hliðina á mér og biðja hann að koma fram með mér, or better yet, senda hann fram !! Nei, gat nú varla gert það, en ég gat ekki fyrir mitt litla líf farið fram í myrkrið. Ég íhugaði að stökkva upp og loka og læsa okkur inni í herberginu, en var of hrædd. Svo ákvað ég bara að gefast upp, hélt utan um strákana og pírði augun þar til ég sofnaði. Svo vaknaði ég við smá læti og voru það greinilega viðgerðarmenn að vinna í götunni og þá kom ljósið aftur. Djísus hvað maður getur verið ruglaður...

Þórunn

Sælar stelpur, hva er Sigga ein að blogga ?! Segi ég sem aldrei blogga sjálf, hehe. Ég að verða vitlaus af að hugsa um hvort ég eigi að gerast læknir eða ljósmóðir...púhh, ætli ég geri nokkuð í þessu. Annars er ég náttla enn heima með guttann, sem er orðinn 7 mánaða og farinn að skríða, þannig að nú er úti um allan frið á heimilinu !!! Það er svo fyndið að fylgjast með honum þessa dagana, hann er svo ánægður með það að komast áfram, en hann hefur nebbla verið dálítið í því að bakka síðustu vikurnar. Anyways, eru allar umræður um utanlandsferð dottnar niður fyrir ?! Vorum við ekki að spá í Prag, Rósa ??

Þórunn

fimmtudagur, apríl 15, 2004

Nú er ég á leiðinni í sumarbústað sem mamma dagmömmubarnsins míns reddaði mér (hmmm..), ekkert smá næs kona:) Hafið það gott allar og góða helgi:)
Auður

Jæja stelpur. American Idol var frestað á þriðjudagskvöldið því fíflið hann Bush var að halda ræðu í sjónvarpinu....agalega fifties eitthvað. Nenni ekki að tjá mig um þann hálfvita hér. En afturámóti var Idol í sjónvarpinu í gærkvöldi í staðin. Þori ekki að tjá mig um það hér því þá taliði aldrei við mig aftur. Reyndar kemur ekki í ljós fyrr en í kvöld hver dettur út, en það er samt einu kvöldi á undan ykkur....ætli þið fáið þáttinn á föstudagskvöld? Jesús góður! Þori ekki einu sinni að hugsa um afleiðingarnar ef Idol kemur ekki á Stöð 2 á föstudaginn. Eina sem ég ætla að tjá mig um er ákveðinn 16 ára gulrótarhaus sem hefur engan sjarma og er ábyggilega bara ennþá inni af því að fólki finnst svo krúttlegt að vera lúðalegur og bara 16 ára að keppa. Quentin Tarantino er kúl.
Sigga

Hvað finnst ykkur um hana Pink? Ég er mjög mikill aðdáandi hennar og hef verið í langan tíma. Ég veit samt að það fíla hana ekki allir, en mér finnst hún kúl ;) Tónlistin hennar er akkúrat það sem ég fíla. Svo það er náttla bara frábært að hún sé að koma til Íslands og ætli að halda tónleika á afmælisdaginn minn, jibbíjei!!!

miðvikudagur, apríl 14, 2004

Stelpur stelpur stelpur eruð þið alveg að gefast upp á að blogga? Ekki hætta! Þið eruð sjálfsagt svo uppteknar af því að vinna og svoleiðis..... Ég afturámóti er að vinna einn og einn dag og þess á milli að undirbúa mig fyrir prufur. Er að fara í eina slíka á föstudaginn og hef verið að læra tvær nýjar einræður því hér í Kanada vill fólk bara fá einræður úr kanadískum leikritum.....fair enough... Prufan á föstudaginn er í leikhúsinu sem tengdó var einu sinni leikhússtjóri og ég var að kenna þar í fyrrasumar þannig að maður þekkir alla þar og er soldið stressaður yfir því. En ma'r reynir að halda stóískri ró.......það líður ekki á löngu þar til ég fæ að leika kærustuna hans Scott Speedman....heheh Auður hann er sko ekkert pjöllulegur í framan.....veit hvað þú átt við en ekki þegar maður sér hann í návígi. Ég hef varla getað talað um annað undanfarið því Paul sagði að hann hafi brosað til mín og ég fríkaði út. Djöfuls unglingur er maður. Vá ég get ekki hætt að skrifa, ég verð að geyma skrifiorku í bloggið mitt....hm kannski geri ég bara copy/paste....sé til. Já og eitt..........Pixies eru að koma til Toronto í Nóvember.
Sigga

mánudagur, apríl 12, 2004

Skrapp til Montreal í vikunni......ferðasagan er á blogginu mínu...nenni ekki að skrifa hana aftur. Vildi bara segja ykkur (aðallega Lindu Dögg) að ég rakst (bókstaflega) á Scott Speedman í dag. Scott Speedman er gaurinn sem lék í Felicity þáttunum sem voru á Stöð 2 einu sinni. Vinur minn hann Scott lék kærastan hennar Felicity og er gott efni í fola vikunnar. Fokk hvað maðurinn er myndó. Hann býr rétt hjá mér komst ég síðar að..........
Sigga

miðvikudagur, apríl 07, 2004

Ein gömul og góð í tilefni páskafrísins!! Vona að ykkur sé sama þó ég birti mynd af ykkur Sara og Stæn þó svo að ekkert hafi heyrst frá ykkur hér.... ennþá allavega;)


Gleðilega páska kæru draumadísir !

Ég ætla eitthvað uppí bústað um páskana og vera með börnunum og karlinum. Ég geri ráð fyrir því að einhverjir vinir líti við, þið eruð að sjálfsögðu velkomnar í heimsókn (látið bara vita áður þannig ég geti leiðbeint ykkur). Mamma og pabbi eru nebbla hjá Siggu systir og family í ameríku þannig að ég er munaðarlaus, búhú... Svo ætla ég að borða góðan mat og gleyma öllu aðhaldi í nokkra daga (mæli með því að Sigga geri það sama svo hún fari ekki alveg yfirum, he he). Ætlar einhver ykkar að gera eitthvað spennandi? Bið bara að heilsa ykkur og hafið þið það sem allra best,

knús og kossar
Rósa

þriðjudagur, apríl 06, 2004

Jæja nú er komið að frumraun minni sem bloggara.....úff púff hvað það er erfitt að vinna svona þegar það er ekkert að gera (er að vinna til 7 sem er hrein martröð). Finnst ykkur ekki týpískt að þegar þið þurfið að vera að gera eitthvað (eins og ég núna að sækja um skóla) þá er endalaust verið að bjóða manni eitthvað annað skemmtilegt. Ég sver það er bara búin að vera í veislum endalaust upp á síðkastið (kokteilboði og afmæli á laugardag, hádegismatarboði á sunnudag og afmælisveislu á mánudag). En svona er þetta bara (æi greyjið ég, eða þannig, hahahhahaha). Hvað ætlið þið annars að gera um páskana??? Ég er að spá í að gera ekki neitt sérstakt....nema kannski flísaleggja baðherbergið mitt!!!! Eina vandamálið er að ég kann ekki að flísaleggja, eða flota gólf.....verð að fá aðstoð við þetta. Þetta er gallinn við að vera ennþá single, enginn handlaginn heimilisfaðir á mínu heimili. En það hefur líklega líka einhverja kosti líka, eins og ég þarf aldrei að pirra mig á rusli neins annars en míns eigins rusli og svoleiðis....ekkert svo merkilegt samt! Jæja ég læt þetta röfl duga að sinni....GLEÐILEGA PÁSKA!!!

mánudagur, apríl 05, 2004

Djöfull er ég þreytt á þessari nýju "heilbrigðu" tilraun hjá mér til að grennast og verða fín eins og þegar ég var 18. Ég hef grennst áður á því að a)drekka f***ing herbalife b)borða ekkert c) hætta með einhverjum gaur og reykja óggslega mikið og missa þ.a.l. matarlyst. Í þetta sinn er ég að æfa á fullu, borða óggisslega hollan mat (samt góðan sko...fullt af fisk og salati og svoleiðis, bara ekki sykur) og geng útum allt. Drekk sjaldan. Borða aldrei eftir kvöldmat, nema kannski epli eða eitthvað svoleiðis. EN EKKERT GERIST! Ég er alveg jafn þung og ég var fyrir tveim mánuðum þegar

Veit að fokking vöðvar eru fokking þyngri en fokking fita en FOKKING KOMMON.
Þetta eru mín tvö sent í dag og ég biðst fokking afsökunar á blótsyrðunum, bara varð að tjá mig um þetta.

Eruð þið með einhver töfraráð? grrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrr Ætla að kíka á hana Dagnýju og sjá hvernig henni gengur......hafiði kíkt á dagbók Dagnýjar?

Sigga frústreraða


Draumadísin Anna María á afmæli í dag. Til hamingju með það, elsku Anna María, og takk innilega fyrir mig á laugardaginn, það var mjög mikið stuð. Vildi að ég hefði getað farið með ykkur að dansa á Þjóðleikhúskjallaranum, en það bíður í nokkra mánuði. Ég kom heim á hárréttum tíma, því Ísak Andri var alveg nývaknaður þegar ég kom heim og tilbúinn að drekka. Anyway, þá vorum við Anna María að tala um að með sumrinu yrði haldin grillveisla, með mökum. Þeir grilla og við blöndum kokteila og svoleiðis. Hvernig líst ykkur á það ?! Ég gæti sennilega haldið veisluna og svo setjum við bara í púkk og förum saman að versla, einhverjar okkar. Ég held að það yrði mjög gaman, sérstaklega ef veðrið verður gott.

Þórunn

sunnudagur, apríl 04, 2004

Takk fyrir mig elsku Anna María, það var rosa gaman að koma og hitta ykkur allar:) Ég endaði svo á Þjóðleikhúskjallaranum með Lindu, Rósu, Mettu og Kristínu Þóru og ég held að ég hafi ekki dansað svona mikið síðan á diskóteki í Seljaskóla hér í den... en skemmti mér hrikalega vel:) Að maður skuli nú ekki gera þetta oftar...

Læt fylgja með þessa gömlu mynd af Siggu í smíði í Seljaskóla, með líka þessa fínu kiwigreiðslu, hehe..


Ég er nú meiri steikin. Fór inná Bloggið mitt og skrifaði til ykkar....hélt ég væri að skrifa á þessa síðu. Jæja, ég copy/peistaði bara það sem ég skrifaði............

Var að skoða bloggið hennar Rósu. VARSTU AÐ KLIPPA ÞIG STELPA? Get ekki ímyndað mér þig með stutt hár. Núna eruð þið örugglega að tjútta heima hjá Önnu Maríu....ég vil skýrslu á morgun. Kannski hringi ég í ykkur...........veit ekki, karlinn var brjálaður því ég hringdi svo mikið til Íslands í janúar. Sé til. Er að fara að syngja í kvöld fyrir venjulegt fólk (ss ekki V-Íslendinga) og þarf að gera mig sæta. Vona að allir skemmti sér vel í kvöld.
Ást og sakn
Sigga nýbúi

föstudagur, apríl 02, 2004

Ohh þær eru svo margar skemmtilegar þessar gömlu myndir. Þessi er bara klassík, tekin í Þórsmörk í 10. bekk.... og fyrstu verðlaun hlýtur Metta fyrir ótrúlega smart snjógalla:)



Ótrúlega miklar gellur maður!!

Auður

fimmtudagur, apríl 01, 2004

Og hvað er þetta sem ég heyri um að það sé íslenskur her í Afghanistan? Er þetta aprílgabb eða hvað?

Líst vel á folann. Hann er kóngur folanna hann Brad sko.
Hef annars ekki mikið að segja annað en að ég held að ég sé einni viku á undan í American Idol hér. ó mæ god hvað það er spennó að vita framtíðina! Og auðvitað líka í Survivor. Verst að ég gleymi alltaf að horfa á þetta ma´r. Horfði samt á American Idol síðast og Fantasia er uppáhalds mín. Og svo svarti strákurinn sem er svo vinalegur. Fíla ekkert þetta rauðhærða gerpi sem heldur ekki lagi. Veit að þetta var ekki fallega sagt en KOMMMON!
Sigga sem er að fara uppí bústað

Ég hef verið að taka aðeins til í tölvunni undanfarið og fundið fullt af gömlum myndum sem ég skannaði inn fyrir reunionið.. ákvað að skella einni góðri inn núna og hendi kannski einni og einni inn reglulega. Í dag eru það aðalskutlurnar á Úlfljótsvatni í 6. bekk, haha:)



Spurning um að setja upp nostalgíuhorn á síðunni og skipta reglulegaum myndir, hmmm...

Til hamingju með nýju vinnuna, Auður draumadís !! Vonandi gengur vel með litlu krílin.

Þórunn

This page is powered by Blogger. Isn't yours?